1. Hvers vegna býður þú þig fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík?
Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmálum svo ákvörðunin um að sækjast eftir 4. – 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins var ekki tekin á einni nóttu. Sumum þykir kannski óráð að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum í því ástandi sem nú ríkir en eftir nokkurra ára veru á hliðarlínunni fann ég þörf hjá mér til að leggja mitt af mörkum. Nú, sem aldrei fyrr, skiptir máli að einstaklingar stígi fram og tali fyrir sannfæringu sinni, og það er ég að gera.
Ég hef áhuga á Reykjavík sem borg og á því hvernig hún hefur áhrif á umgjörð samfélagsins og daglegt líf borgarbúa. Á sveitastjórnarstiginu gefst einstakt tækifæri til þess að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem eru teknar um öll þau mikilvægu málefni sem hafa áhrif á lífsgæði borgarbúa eins og skólamál, skipulagsmál, fjármál, íþróttir og tómstundir, skatta o.s.frv. Ísland gengur nú í gegnum sína dýpstu kreppu á lýðveldistímanum og það skiptir máli hvernig verður farið með þessi mál sem og hverjir leiða þau. Ég býð mig fram til þess.
2. Hver eru áherslumál þín?
Það er sannfæring mín að lausn efnahagsvandans felist ekki í auknum álögum og hækkun skatta heldur er það fjölbreytt og kröftugt atvinnulíf sem skapar grundvöllinn að aukinni hagsæld. Borgaryfirvöld mega ekki fara sömu röngu leið og ríkisstjórnin og hækka skatta og álögur á heimilin og fyrirtækin í borginni. Þess í stað verður borgin að tryggja atvinnuskapandi umhverfi og stuðla að samstöðu og sátt um forgangsröðun verkefna og ráðstafanir úr sameiginlegum sjóðum borgarbúa.
Mér finnst Reykjavík frábær borg. Hún er kannski minnsta heimsborg í heimi því hér hefur verið hægt að ganga að fjölbreyttum viðburðum sem eru á heimsmælikvarða allan ársins hring sem hlýtur að vera eitt af þessum frægu heimsmetum Íslands miðað við höfðatölu. Hér á áfram að vera eftirsóknarvert að búa. Reykvíkingar eiga að geta gengið að góðri þjónustu, m.a. öflugum skólum og félagsþjónustu, góðum samgöngum og fjölbreyttum möguleikum til tómstundaiðkana. Þá er mikilvægt að styðja sérstaklega við þá sem þurfa á aðstoð að halda. Skilyrðin fyrir því að hægt sé að veita Reykvíkingum þessa þjónustu er að tekjustofnar borgarinnar séu traustir og þeim ráðstafað skynsamlega.
Það er lykilatriði að hlúa að öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi í Reykjavík því þannig sköpum við grundvöllinn að auknum lífsgæðum borgarbúa og betri þjónustu í borginni. Reykjavíkurborg ber fyrst og fremst að huga að því að búa fyrirtækjum, einyrkjum og frumkvöðlum samkeppnishæf skilyrði til atvinnurekstrar og tryggja að skattar og gjöld verði eins lágir og kostur er. Þá felast fjölmörg tækifæri í ferðaþjónustu og menningartengdri starfsemi í Reykjavík. Borgaryfirvöldum ber að hlúa að þessum mikilvægu starfsgreinum eins og frekast er kostur. Reykjavíkurborg verður að standa sig enn frekar í skipulagsmálum og skapa frosendur fyrir öflugri þjónustu og hvers konar verslun á þeim svæðum sem eru á hennar forsvari.
3. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna hefur sannarlega verið umdeildur á undanförnum árum. Hvað telur þú að mikilvægt að gæta innan hóps borgarstjórnarfulltrúa?
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna undir öflugri forystu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra hefur starfað ötulega að hagsmunum borgarbúa. Lykilatriði við að ná þess konar samstöðu í borgarstjórnarflokknum er að allir leggist á eitt við að skapa samstöðu í hópnum. Starf mitt sem lögfræðingur í atvinnulífinu og sem framkvæmdastjóri í félagslegum, jafnréttis og menningarlegum verkefnum kenndi mér hversu mikilvægt það er að bera virðingu fyrir skoðunum og afstöðu annarra. Ég hef haft í huga í störfum mínum í hópum þar sem skoðanir eru skiptar að bestu lausnirnar finnast ef samskiptin grundvallast á virðingu og tillitssemi.
4. Reykjavíkurbúum bauðst nú fyrir stuttu að koma sinni skoðun á framfæri um komandi verkefni borgarinnar, með rafrænni kosningu. Hvernig sérð þú fyrir þér þessa þróun, telur þú þetta vera heppilega leið fyrir Reykjavíkurbúa að koma að þróun borgarinnar?
Mér finnst mikilvægt að borgarbúar fái fleiri tækifæri til þess að taka þátt í stefnumótun borgarinnar með því að efla íbúakosningar enn frekar eins og þá sem fór fram sl. desember. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar hafið mikilvæga vinnu í því sambandi sem hefur skilað góðum árangri.
Fáir hafa tök á því að hafa yfirsýn yfir ársreikninga eða fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Eitt megininntak fulltrúalýðræðis er einmitt að kjósendur velji sér fulltrúa sem þeir treysta til að halda utan um slík mál en þetta fyrirkomulag uppfyllir ekki nógu vel kröfur samtímans um aukna möguleika íbúa til að kjósa um helstu mál síns sveitarfélags. Nauðsynlegur hlekkur í áttina að auknu íbúalýðræði er að auka kostnaðarvitund íbúa og fræðslu um fjármál og ráðstöfun fjármuna úr sameiginlegum sjóðum Reykvíkinga. Upplýsingar um gerð og samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir hvert ár verða því að vera aðgengilegar og skiljanlegar svo hægt sé að vinna að samstöðu og sátt á meðal borgarbúa um ráðstöfun úr sameiginlegum sjóðum þeirra.
Ég vil þó taka fram að slíkar kosningar mega ekki verða til þess að taka ábyrgðina af stjórnmálamönnum. Þeir eru kosnir sem fulltrúar almennings og verða sem slíkir að gæta jafnvægis á milli ólíkra en jafn rétthárra hagsmuna borgaranna. Við verðum t.a.m. að gæta að því að meirihlutinn geti ekki traðkað á grundvallar réttindum minnihlutans.
5. Ætla má að niðurskurður sé framundan í borginni. Hvaða hugmyndir hefur þú um fjármál borgarinnar?
Forgangsröðunin er þegar hafin hjá meirihluta sjálfstæðismanna í borginni sem hafa brugðist ábyrgt við efnahagsástandinu og forgangsraðað í þágu barna og velferðar fyrst og fremst. En það er alveg rétt að við munum ekki vinna okkur út úr þessu ástandi án þess að forgangsraða enn frekar og sumstaðar verðum við að skera niður. Slíkt mun óhjákvæmilega koma niður á þjónustu borgarinnar.
Okkar fyrsta verk á að vera að fara gaumgæfilega yfir rekstrarreikning borgarinnar með það að markmiði að skoða möguleika til niðurskurðar í því sem ekki telst til grunnþjónustu borgarinnar. Við skilgreiningu á grunnþjónustu þurfum við fyrst og fremst að líta til velferðamála, skólamála og félagsþjónustu. Við þurfum þó einnig að hagræða og spara í þessum málaflokkum í samvinnu við stjórnendur borgarinnar. Vonandi verða þó allar þessar aðgerðir tímabundnar.
Ég vil sérstaklega nefna það að við verðum að forðast frekari lántökur enda blóðugt að sjá á eftir skattgreiðslum í gríðarlegar vaxtagreiðslur. Lántökur eru í raun skattheimta framtíðarinnar og munu koma niður á borgarbúum þegar til lengri tíma er litið. Við líðum til dæmis núna fyrir lausatök R-listans í fjármálum borgarinnar.
6. Hvaða reynsla hefur þú sem nýtist þér í starfi borgarfulltrúa?
Ég hef mjög fjölbreytta reynslu sem ég tel að komi borgarbúum að gagni. Menntun mín og starfsreynsla sem lögfræðingur í atvinnulífinu hefur kennt mér að líta á allar hliðar mála og velta upp mismunandi sjónarmiðum í leit að farsælum lausnum. Þá hefur starf mitt sem framkvæmdastjóri V-dags samtakanna kennt mér að vinna með ólíku fólki sem hefur ólíkar skoðanir sem þarf að samræma. Ég er svo lánsöm að mér hefur oft verið treyst fyrir því að leiða verkefni og þá reynir oft á að vera hugmyndaríkur og úrræðagóður svo hægt er að ná sameiginlegum markmiðum.
Mikilvægt er að Sjálfstæðisflokkurinn stilli upp lista sem höfðar til breiðs hóps kjósenda. Ég tel að reynsla mín geti stuðlað að aukinni breidd á meðal borgarfulltrúa svo sjálfstæðismenn verði með öflugasta listann í vor.
7. Hvaða möguleika telur þú Sjálfstæðisflokkinn hafa í komandi kosningum í borginni?
Sjálfstæðisflokkurinn býr að því að njóta forystu borgarstjórans, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem er einstaklega hæfur og óumdeildur leiðtogi. Ég tel að borgarbúum hugnist stefna Sjálfstæðisflokksins og sú vinna sem borgarstjórnarflokkurinn hefur innt af hendi undir stjórn hennar til að bregðast við efnahagshagsástandinu.
Sjálfstæðisflokkurinn er leiðandi afl í borgarmálum og verður áfram, sérstaklega ef hann nær betur eyrum ungs fólks. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að sýna að hann hefur breiða skírskotun, er opinn og lýðræðislegur flokkur þar sem einstaklingar sameinast um ákveðin grunngildi. Ég tel að eitt stærsta verkefnið fyrir kosningarnar í vor er að tala við ungt fólk og sýna þeim fram á þetta.
8. Hvað myndirðu gera ef þú værir borgarstjóri í einn dag?
Panta brjóstmyndina.

