Deiglumolar
Tony Blair situr fyrir svörum
29.01.10
Sérskipuð rannsóknarnefnd á vegum breska þingsins, rannsakar nú aðdraganda innrásarinnar í Írak. Á undanförnum dögum hefur hún kallað til sín marga embættismenn í breskri stjórnsýslu og í dag mun Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands sitja fyrir svörum. Sýnt er beint frá yfirheyrslunni og má fylgjast með henni á heimasíðu BBC.
