Forsíða » Pistlar » Almennir pistlar » Manowar á mánudegi

Manowar á mánudegi

Öllum unnendum ljúfra tóna er kunnugt um hljómsveitina Manowar frá Auburn í New York fylki í Bandaríkjunum. Nýverið gaf sveitin út skífuna God of War sem helguð er norrænni goðafræði, einkum Óðni. Er sú skífa nokkuð hressandi.

Undirritaður hefur lengi verið aðdáandi hljómsveitarinnar Manowar og ekki minnkaði sú aðdáun eftir að hafa hlustað á nýjustu skífu sveitarinnar. Skífan er sú fyrsta í röð nokurra sem helgaðar eru goðafræði en hetjudáðir og grimmdarverk í goðsögum hafa verið hugleikin hljómsveitinni eins og sést t.a.m. í ljóði lagsins Hail and Kill:

Blood and death are waiting like a raven in the sky
I was born to die
Hear me while I live
As I look into your eyes
None shall hear a lie
Power and dominion are taken by the will
By divine right hail and kill

Hail, Hail, Hail, Hail and Kill, Hail and Kill
Hail, Hail, Hail, Hail and Kill, Hail and Kill

My father was a wolf
I'm a kinsman of the slain
Sworn to rise again
I will bring salvation, punishment and pain
The hammer of hate is our faith
Power and dominion are taken by the will
By divine right hail and kill
Hail, Hail, Hail, Hail and Kill, Hail and Kill
Hail, Hail, Hail, Hail and Kill, Hail and Kill

Hljómsveitin hefur ranglega verið bendluð við nasisma í gegnum tíðina. Stafar það líklega af vanþekkingu á stefnum og straumum í bókmenntafræðum en ljóðin við flest lög hljómsveitarinnar sverja sig í ætt við rómantík 19. aldar. Rétt er að geta þess að liðsmenn Manowar hafa iðulega þvertekið fyrir að vera nasistar.

Í ljóðum Manowar birtist þrá liðsmanna að unnendur þungarokks gangi í bræðralag þvert á landamæri. Segja má því að ljóð Manowar séu undir sterkum áhrifum vissrar alþjóðahyggju. Ljóðin eru því nokkurs konar sambræðingur rómantíkur 19. aldar, alþjóðahyggju auk þess sem þau eru undir afar sterkum áhrifum hernaðarhyggju. Þessi sambræðingur birtist ágætlega í laginu Warriors of the World United.

Nýjasta skífa hljómsveitarinnar hefur selst ágætlega. Skífan var næst söluhæst í Þýskalandi sem og í Grikklandi, tólfta í Finnlandi, sautjánda í Svíþjóð og þrítugusta og sjötta í Noregi. Hér að neðan er lagalisti skífunnar sem og hlekkir á hið stórbrotna meistaraverk God of War, njótið.

1. Overture to the Hymn of the Immortal Warriors
2. The Ascension
3. King of Kings
4. Army of the Dead, Part I
5. Sleipnir
6. Loki God of Fire
7. Blood Brothers
8. Overture to Odin
9. The Blood of Odin
10. Sons of Odin
11. Glory Majesty Unity
12. Gods of War
13. Army of the Dead, Part II
14. Odin
15. Hymn of the Immortal Warriors
16. Die for Metal

Svara þessum pistli
Athugið að Deiglan áskilur sér rétt til að velja og hafna svörum. Takk fyrir!
Þessari færslu hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.
Um höfundinn
Andlitsmynd af höfundi
Fullt nafn:
Bjarni Már Magnússon
Fæðingard:
16. september 1979
Staða:
Aðjúnkt
Menntun:
Stúdent úr MA, embættispróf í lögfræði frá HÍ, MA í alþjóðasamskiptum frá HÍ, LL.M í hafrétti frá Miami háskóla, hdl. réttindi.
hCard
Nýlegt á Deiglan.com

Er Ísland að bráðna?

Vinnuhópur Umhverfisráðherra skilaði nú nýlega skýrslu um áhrif hlýnandi loftslags á Ísland. Snöggur yfirlestur skýrslunnar gefur til kynna að fyrir fólk á nyrstu hjörum veraldar, þá gætu verri hlutir gerst en að veðrið hlýnaði aðeins.

Að finna fyrir þjóðarstoltinu

Sæunn Björk ÞorkelsdóttirHvaða Íslendingur er ekki að rifna úr þjóðarstolti þessa dagana og vikurnar? Þjóðin fagnaði heldur betur heimkomu silfurstrákanna í dag með glæsilegri móttöku í miðbæ Reykjavíkur, móttöku sem strákarnir áttu sannarlega skilið. Ég hafði hugsað mér að mæta á Skólavörðustiginn og Arnarhól í dag og veita Ólympíuförunum þá virðingu sem þeim bar að fá en þar sem ég stend í flutningum þessa dagana lét ég ekki verða að því. Ég er ekki frá því að sú ákvörðun hafi verið röng.

Hætt við fegurðarsamkeppni nunna

Ítalski presturinn sem sagður var ætla skipuleggja fyrstu fegurðarsamkeppni nunna hefur hætt við að halda keppnina. Hann tekur orð Georgs Bjarnfreðarsonar sér í munn og segir að um misskilning hafi verið að ræða.

Er forsetaembættið orðið djók?
Fegurðarsamkeppni nunna
Ósáttur keppandi
Gull eða silfur?
Viðtalið við Óla