Það má með sanni segja að dagurinn í dag sé nokkurs konar Þorláksmessa þeirra sem fylgjast af lífi og sál með knattspyrnu. Eftirvænting og tilhlökkun fær að leika lausum hala, líkt og hjá yngri kynslóðinni fyrir jólahátíðina, enda ótrúlegar kræsingar sem verða á boðstólum næsta mánuðinn. Hver þjóð bíður spennt að sjá hvers konar gjafir leikmenn þeirra ætla að senda heim frá Suður-Afríku. [...meira]
Spennan magnast, allar kaffistofur landsins eru uppfullar af yfirtensuðum Íslendingum sem eiga þá ósk heitasta að geta burstað Spánverja í einum mikilvægasta leik sem landið hefur upplifað síðan ég man eftir mér.
[...meira]
Við setningu Ólympíuleikana í Beijing óraði engan fyrir því að þeir yrðu jafnsögulegir og raun ber vitni. Fjöldi heimsmeta voru slegin og afrek unnin en eitt þeirra mun þó án nokkurs vafa standa upp úr. [...meira]
Í dag eru aðeins 22 dagar þar til Ólympíuleikarnir verða settir í Peking, höfuðborg Kína. Ísland á að venju glæsilega fulltrúa á leikunum og að þessu sinni koma þeir úr sex íþróttagreinum. [...meira]
Þessi pistill er ekki eins og aðrir pistlar skrifaðir um íþróttir á Deiglunni, aðallega vegna þess að sá sem þetta skrifar hefur ekki hundsvit á íþróttum, hvaða nafni sem þær nefnast. Ekki nóg með það heldur hefur ekki verið nokkur einasti áhuga á að breyta því ástandi. Almenn stefna hefur verið að hafa engar væntingar til íþróttakappleikja Íslendinga og verða þannig aldrei fyrir vonbrigðum, við erum jú bara 300 þúsund. Hvers er að vænta?
[...meira]
Ólympískar skylmingar er íþróttagrein sem hefur vaxið mikið á Íslandi undanfarin ár. Árangur íslendinga hefur heldur ekki látið á sér standa þrátt fyrir að tiltölulega stutt sé síðan iðkun íþróttarinnar hófst fyrir alvöru hér á landi. Erlendis á þessi forna íþrótt sér hins vegar langa sögu og er víðsvegar mikilsmetin og vinsæl. [...meira]
Síðastliðin mánudag voru 20 ár frá því að maður að nafni Alexander Chapman Ferguson tók við stjórnartaumunum á hinu fornfræga enska knattspyrnuliði Manchester United. Liðið mátti muna sinn fífil fegurri og ljóst var að nýr framkvæmdastjóri átti ærið verk fyrir höndum. Nú tuttugu árum síðar er löngu orðið staðfest að Ferguson var svo sannarlega rétti maðurinn í starfið. [...meira]
Ég fór á minn fyrsta landsleik, hér á landi þegar mér var boðið á landsleik Íslands og Danmerkur. Þrátt fyrir að teljast í hópin andíþróttasinna, ákvað ég að skella mér á leikinn, enda boðið í bjór á undan. Ekki óx áhugi minn á knattspyrninu við leikinn en ég held því fram fullum fetum að ég hafi slæm áhrif á landsliðið og er því afsakaður á næstu leikjum.
[...meira]