Forsíða » Pistlar » Deiglupistlar

Orri Freyr Rúnarsson

Skápatiltekt Færeyinga

Við Íslendingar getum verið stoltir af mörgu. Við höfum besta vatnið, fegurstu fljóðin og sterkustu karlanna. Eða svo höldum við. Raunveruleikinn er sá að Sviss á hreinasta vatnið, fegursta kona heims kemur frá Gíbraltar og Íslendingur stóð síðast uppi sem sigurvegri í keppninni Sterkasti maður heims árið 1996. Það er þó eitt sem við getum þó ávallt verið stolt af og það er að við stöndum framarlega þegar kemur að mannréttindum. [...meira]

Orri Freyr Rúnarsson Svör ()

Óli Örn Eiríksson

Þarf Ísland iðnaðarstefnu?

Íslenska ríkisstjórnin þarf að skera niður í ríkisútgjöldum. Hingað til hefur sá niðurskurður verið að mestu leyti flatur. Það á enn eftir að skera meira niður. Spurningin er hvort hægt sé að skera niður á markvissari hátt þannig að sá peningur sem sitji eftir sé nýttur með sem bestum árangri. Skýr stefna og forgangsröðun eru skilyrði þess að slíkur árangur náist. [...meira]

Óli Örn Eiríksson Svör ()

Helga Margrét Marzellíusardóttir

Öll börn eru gæfubörn

Ég geri eiginlega allt hratt eða í flýti. Ég labba hratt, ég tala hratt, ég skrifa hratt, ég tek ákvarðanir í miklu flýti og er á móti því að lífið mitt sé allt fyrirfram ákveðið. Ég átti kærasta á leikskólanum og gekk ég að eiga hann við viðeigandi athöfn í dúkkukróki þegar ég var fjögurra ára. Ég var snemma byrjuð að syngja, tala og vera ákveðin og vildi vera löngu byrjuð í skóla þegar ég var fimm ára. [...meira]

Helga Margrét Marzellíusardóttir Svör ()

Hallgrímur Viðar Arnarson

Mikilvægi frelsisins

Frelsi er það dýrmætasta sem við eigum. Það er ekki sjálfsagður hlutur. Frelsi er í raun forréttindi sem ekki allir búa við. Styrjaldir, uppreisnir, borgarastríð og ófriður af ýmsu tagi vitnar um það. [...meira]

Hallgrímur Viðar Arnarson Svör ()

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir

Með frelsi fylgir ábyrgð, en hver ber ábyrgðina?

Á Íslandi gildir sú regla að ábyrgð á fjármálum hvílir að meginstefnu til á neytendum og skuldurum. Hver kannast ekki við þá klassísku útskýringuna á hækkandi verðlagi að gengi krónunnar hafi lækkað eða verðbólgan hækkað þann mánuðinn? Öllu sjaldséðari eru lækkanir þegar gengi krónunnar hækkar eða verðbólgan hjaðnar. Veruleikinn virðist vera sá að um leið og einhver hækkun á sér stað í innflutningi á vöru er kostnaðinum sem hlýst af því varpað yfir á neytendur. [...meira]

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir Svör ()

Jóhann Már Helgason

Barack Obama stendur í lappirnar

Nú er meira en eitt og hálft ár síðan Barack Obama sór embættiseið sem 44. forseti Bandaríkjanna. Gríðarlegar væntingar voru gerðar til hans þar sem hann vann nokkuð sannfærandi sigur á mótherja sínum John McCain. Frá fyrsta degi hefur Obama staðið í ströngu. Hann hefur þurft að taka ákvarðanir sem ekki alltaf eru vinsælar og sést það best á því að stuðningur við hann mældist ekki nema 43% í sumar. [...meira]

Jóhann Már Helgason Svör ()

Vignir Hafþórsson

Vondur, verri, verstur

Af umræðunni að dæma, mætti stundum ætla, að bandarískir repúblikanar og skandinavískir feministar séu þær hreyfingar sem berjast um hituna um versta stjórnarfarið á jörðinni. Eftir því hvar þú stendur í málefnum um hlutverk ríkisins og klæðaburðar. Þess á milli fleytum við kertum til að minnast hörmulegra atburða fyrri tíma og berjum okkur á brjóst „aldrei aftur“. Minna fer hins vegar fyrir slíkum athöfnum til að minnast þeirra hörmulegra atburða sem viðgangast í dag. [...meira]

Vignir Hafþórsson Svör ()

Orri Freyr Rúnarsson

Aðskiljum ríki og kirkju

Málefni íslensku Þjóðkirkjunar virðast komast í umræðuna með nokkuð reglulegu millibili og oftar en ekki er sú umræða neikvæð. Á síðustu vikum hefur þessi umræða þó náð nýjum hæðum og hvert hneykslismálið á fætur öðru virðist vera að koma í ljós. [...meira]

Orri Freyr Rúnarsson Svör ()

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir

Smokkurinn orðinn munaðarvara

Á þeim niðurskurðartímum sem nú ríkja hefur ríkisstjórnin að mörgu leyti farið að fordæmi Norðmanna í því að skattleggja munaðarvörur hærra en nauðsynjavörur. Þannig hefur til að mynda skattur á áfengi og tóbak verið hækkaður mikið en reynt hefur verið að halda skatti á matvörum lægri. Í vikunni sem leið birtist frétt sem nefndi aðra vöru sem skattlögð er í hæsta flokki, en það eru smokkar. [...meira]

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir Svör ()

Gunnar Ragnar Jónsson

Gefur efnahagslegur vöxtur svigrúm fyrir harðstjórn?

Þann 9. ágúst sl. gengu íbúar Rúanda að kjörborðinu. Kjörsókn var með ágætum eða 97%. Sitjandi forseti Paul Kagame hlaut 93% atkvæða í kosningunum en hann hefur verið við völd frá árinu 2000 þegar Pasteur Bizimungu sagði af sér. Í pistli dagsins ætla ég að fjalla stuttlega um manninn og tvær hliðar hans við stjórn landsins. Hina ljósu og þá dökku.
[...meira]

Gunnar Ragnar Jónsson Svör ()

Vignir Hafþórsson

Það er smá kántrý í öllum

Sumarið er tími úti- og bæjarhátíða á Íslandi. Við ferðumst mörg hornanna á milli til þess að njóta landsins gæða og gestrisni landsbyggðarinnar. Stærstu hátíðarnar standa yfir venju samkvæmt um verslunarmannahelgina, sem markar í hugum margra lok ferðarsumarsins. En í sveitarfélaginu Skagaströnd, er ár hvert haldin merk hátíð, sem á að höfða til þeirra sem vilja framlengja ferðasumarið um ögn. En sú hátíð er hin margrómaða hátíð, Kántrýdagar. [...meira]

Vignir Hafþórsson Svör ()

Einar Leif Nielsen

Ég vel erlent ... stundum

Síðasta árið hef tekið mig talvert á hvað varða hollt mataræði og hreyfingu. Þó það hafi tekist misvel til er ég enn vonandi á réttri leið. Það er því frekar leiðinlegt að sjá að flestir innlendir matvælaframleiðendur eru ekkert á þeim skónum að sýna næringarinnihalda framleiðslu sinnar. Undantekningarnar á þessu eru í nánast öllum tilfellum heilsuvörur, sem skiljanlega vilja reyna sína fram hve hollar vorur sínar eru. [...meira]

Einar Leif Nielsen Svör ()

Ingvar Sigurjónsson

Ríkisstjórnin skaðar trúverðugleika Íslands

Kanadíska fyrirtækið Magma Energy gerði á dögunum samning um kaup á HS Orku. Ríkisstjórnin hafði einhver afskipti af þeim samningaviðræðum á sínum tíma en sætti sig að lokum við kaupin. Nú, á síðustu metrunum, ákveður ríkisstjórnin hins vegar aftur að grípa inn í. Hún lýsir því yfir að hún muni “ekki staðfesta” samninginn, heldur skipa nefnd sem hefur það markmið að “vinda ofan af” kaupunum. Slíkt eykur ekki trúverðugleika landsins.
[...meira]

Ingvar Sigurjónsson Svör ()

Orri Freyr Rúnarsson

Nýja Ísland: íslenska sauðkindin, slöngur og ísbirnir í sömu sæng

Segja má að oft á tíðum virðist hálf fasískur hugsunarháttur viðgangast í málefnum dýrategunda á Íslandi. Sárafáar tegundir eru leyfðar sem viðurkennd gæludýr og allt frá því að Sædýragarðurinn í Hafnarfirði lokaði hefur íslenska sauðkindin, sem er reyndar fallegasta sauðkind í heimi, trúlega verið í hópi mest spennandi tegundanna á Íslandi, jafnt inn á heimilum fólks sem og Húsdýragarðinum. [...meira]

Orri Freyr Rúnarsson Svör ()

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir

Hvað er að óttast?

Nú þegar aðildaviðræður við Evrópusambandið eru að hefjast, er fólk í auknum mæli ósammála um viðræðurnar. Einhverjir eru komnir á þá skoðun að draga eigi umsóknina tilbaka og kom það sjónarmið meðal annars skýrt fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í síðasta mánuði. Íslendingar hafa í áraraðir þrætt um Evrópusambandið, kosti þess og galla. En er ekki kominn til þess að við sjáum hverskonar samning Evrópusambandið býður okkur og leyfum síðan þjóðinni að ákveða hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið eða ekki?
[...meira]

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir Svör ()

Helga Lára Haarde

Heimskuleg hverfaskipting

Margir framhalsskólanemar standa nú frammi fyrir því að komast ekki inn í þann skóla sem þeir helst kysu en í staðinn er þeim gert að hefja nám í “hverfisskólanum” sínum samkvæmt nýjum innritunarreglum í framhaldsskóla. Mikil óánægja er með þetta eins og við höfum séð af fréttum undanfarna daga.
[...meira]

Helga Lára Haarde Svör ()

Jóhann Már Helgason

Megi betra liðið vinna!

Í dag er leikið til úrslita í Heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Á meðan lítill hópur antisportista fagnar því að fá fréttirnar á RÚV á sinn hefðbundna 19:00 tíma þá skilur þetta eftir blendnar tilfinningar fyrir okkur hin sem höfum notið þess í heilan mánuð að hafa horft á hátt í þrjá fótboltaleiki á dag. [...meira]

Jóhann Már Helgason Svör ()

Bjarni Kristinn Torfason

Klasaklúður fjármálaeyjunnar, kafli XXXIV – Gengistryggðu lánin

Enn einn kaflinn í bankahrunsuppgjörinu er nú í hápunkti. Hæstiréttur dæmdi nýlega lán í krónum tengd gengi erlendra mynta ólögleg. Hvað það þýðir veit nú enginn en mikilvægt er að halda ró sinni og stefna hratt og örugglega að úrlausn þessa máls enda um samninga upp á hundruð milljarða að ræða og fjárhagsleg heilsa fjölmargra heimila háð lendingu þess.
[...meira]

Bjarni Kristinn Torfason Svör ()

Óli Örn Eiríksson

Fagleg ráðning?

Undanfarnar vikur hefur mikið borið á umræðum um faglegar ráðningar. Af umræðunum má ráða að þetta þykir vera hið mesta þarfaþing en það virðist víst enginn vita hvað nákvæmlega fagleg ráðning er né hvað hún felur í sér. [...meira]

Óli Örn Eiríksson Svör ()

Vignir Hafþórsson

Málsvari andskotans

Nýverið birtust fréttir af því að gríðarlega verðmætar auðlindir hafi fundist í jörðu í Afganistan. Kopar, lithíum og fleiri málmar sem myndu samsvara einni billjón dollara. Fyrstu viðbrögð margra voru að þarna hafi happadísin loksins gjóað augunum á þetta lánlausa land og þarna væri kominn grundvöllur fyrir efnahagslegri uppbyggingu landsins. Sagan sýnir okkur þó að það er ekki alltaf framhald slíkra lottóvinninga. Ég ætla því að leyfa mér að taka að mér hlutverk málsvara andskotans.


[...meira]

Vignir Hafþórsson Svör ()

«Fyrri síða | | 1 · 2 · 3 · 4 · 5 ·... | |

Pistill vikunnar Svör ()

Pistill vikunnar Svör ()

Pistill vikunnar Svör ()