![]() Sean Bell með verðandi eiginkonu sinni og barni. |
Atburðarásin hófst með því að þremenningarnir lentu í orðaskaki við lögreglumennina, sem voru að rannsaka meinta ólöglega starfsemi á skemmtistað. Samkvæmt vitnisburði lögreglumannanna mun einhver þremenninganna hafa nefnt byssu og haft í hótunum. Í kjölfarið settust þeir inn í bíl og Bell ók á einn lögreglumannanna og tvívegis á ómerktan lögreglubíl. Ekki hefur komið fram hvort Bell og félagar vissu að mennirnir voru lögreglumenn.
![]() Ýmsir sögðu að lögreglumennirnir sem skutu Diallo hefðu brugðist öðruvísi við hefði hann verið hvítur. |
Þetta mál þykir um margt minna á það þegar annar blökkumaður, Amadou Diallo var skotin til bana í skuggalegu hverfi í New York árið 1999. Þá báðu fjórir lögreglumenn hann að nema staðar þar sem hann stóð fyrir utan heimili sitt. Hann varð hræddur og brást flemturslega við. Í kjölfarið skutu lögreglumennirnir 41 skoti að honum og hittu hann 19 sinnum. Í báðum þessum tilfellum hleypa vel þjálfaðir lögreglumenn tugum skota af á örskömmum tíma en innan við helmingur þeirra hæfir skotmarkið.
![]() Breska lögreglan taldi mögulegt að Menezes væri með sprengju í bakboka. |
Ég hef mikla samúð með lögreglumönnum sem þurfa fyrirvaralaust að taka ákvarðanir sem geta haft svo skelfilegar afleiðingar. Þeir eiga það líka á hættu að láta sjálfir lífið ef þeir hika á röngu augnabliki. Það er einmitt þess vegna sem við eigum að forðast að lögreglumenn á Íslandi beri vopn. Örfá tilvik koma upp þar sem lögreglumönnum er ógnað með skotvopnum og þegar það gerist er sérsveitin boðuð. Hingað til hefur þetta ferli gengið farsællega.
Ákvörðun um beitingu vopns til sjálfsvarnar er sjaldnast tekin eftir vandlega íhugun og kúlunni verður ekki snúið við eftir að þrýst er á gikkinn.





Svara þessum pistli
Facebook notendur geta skráð athugasemdir við pistla. Vinsamlega látið fullt nafn fylgja með öllum svörum, verið málefnaleg og haldið ykkur innan marka almennrar kurteisi. Ritstjórn kærir sig ekki um að Deiglan sé vettvangur fyrir einelti eða skítkast og áskilur sér fullan rétt til að velja og hafna svörum. Takk fyrir!