Lagalegur fyrirvari

Útgefandi Deiglunnar er Stjórnmálafélagið Deiglan sem stofnað var 9. mars 2005. Stjórnmálafélagið Deiglan er almennt félag með aðsetur í Reykjavík.

Allt efni sem birtist á Deiglunni er byggt á heimildum sem útgefandi, ritstjórar eða eftir atvikum nafngreindir höfundar telja áreiðanlegar. Deiglan sem útgefandi vefritsins getur ekki ábyrgst að upplýsingar sem fram koma séu allar réttar. Deiglan ber enga ábyrgð á afleiðingum sem kunna að hljótast af því að stuðst hafi verið við efni sem birtist á Deiglunni. Deiglan áskilur sér rétt til þess að breyta innihaldi þessa vefjar á hvaða hátt sem er, og hvenær sem er, í hvaða tilgangi sem er, án sérstakrar tilkynningar fyrirfram þar að lútandi og tekur ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum slíkra breytinga fyrir lesendur.

Ábyrgð

Nafngreindir höfundar efnis á Deiglunni bera refsi- og skaðabótaábyrgð á skrifum sínum en ritstjórar og útgefandi bera sameiginlega ábyrgð á því efni sem ekki sérstaklega merkt tilteknum höfundi eða höfundum í samræmi við ákvæði laga um prentrétt nr. 57/1956. Skoðanir einstakra höfunda efnis á Deiglunni þurfa ekki endilega að endurspegla skoðanir annarra höfunda, ritstjóra eða útgefanda vefritsins.

Höfnudarréttur

Útgefandi og eftir atvikum nafngreindir höfundar eiga höfundarrétt á öllu því efni sem fram kemur á Deiglunni, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða má af eðli máls. Skriflegt, eða á annan hátt sannanlegt, samþykki útgefanda eða höfundar þarf til að endurbirta efni sem fram kemur á Deiglunni, dreifa því eða afrita. Hvorki skiptir máli hvers eðlis slíkt efni er né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta það, afrita það eða dreifa því. Lesendum Deiglunnar er þó hemilt að vista og prenta efni af Deiglunni til einkanota. Öllum er heimilt að vísa í efni á Deiglunni af öðrum vefsíðum að því gefnu að fram komi með skýrum hætti hver uppruni þess er og slíkri tilvísun fylgi hlekkur inn á viðkomandi efni á Deiglunni.


Birting athugasemda frá notendum

Ef þú sem notandi leggur inn athugasemdir til birtingar á Deiglan.com samþykkir þú að þær persónuupplýsingar sem þú gefur við skráningu athugasemda séu réttar og sannanlegar og að þú berir persónulega ábyrgð á þeim athugasemdum sem birtar eru á Deiglan.com.

Þú samþykkir jafnframt að þær athugasemdir og upplýsingar sem þú skráir á heimasíðu Deiglunnar og eru sjáanlegar almenningi séu innan velsæmismarka og ekki meiðandi fyrir þriðja aðila.

Deiglan áskilur sér rétt til að hafna athugasemdum sem ekki uppfylla þessi skilyrði og/eða fjarlægja efni af síðunni sem ekki telst viðeigandi.


Vefmælingar

Þessi vefsíða notar Google Analytics eða önnur sambærileg tól til mælinga á umferð á vefsíðum sem heyra undir Deiglan.com. Til þessa eru notaðar svo kallaðar vefkökur sem er komið fyrir í vafra notandans. Notendur geta í gegnum stjórnborð vafranna haft fulla stjórn yfir því hvort þeir samþykkja þessar vefkökur eður ei.

Þeim upplýsingum sem safnað er eru á engan hátt persónugreinanlegar. Sjá nánari upplýsingar um Google Analytics.