Aðgengismál
Með undirbúning nýrrar útgáfu af Deiglunni sem fór í lofið um miðjan febrúar 2007 var leitast við að hanna vefinn með þarfir ólíkra notenda í huga og að gera hans sem aðgengilegastan og kostur er.
Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um hvað hefur verið gert til að stuðla að betra aðgengi á Deiglan.com:
- Vefurinn er smíðaður samkvæmt XHTML stöðlum W3C og er útliti hans stýrt með stílsniðum (CSS).
- Hægt er að stilla stærðir á letri vefsíðunnar með (+ og - ) hnöppum ofarlega til hægri á skjánum.
- Titlar og fyrirsagnir á vefsíðunni eru skilgreindar með headings eigindinu á þann hátt að titill síðunnar er h1, dálkafyrisagnir eru h2 og fyrirsagnir pistla og greina eru h3.
- Allar myndir birtar frá og með jan 2007 utan skreytimynda hafa skýran og skilmerkilegan ALT texta. Unnið er að innsetningu á ALT texta á myndum birtum fyrir jan. 2007.
- Allt efni síðunnar er aðgengilegt í skjálesururum. Fyrir notendur skjálesara eru einnig tenglar innan hverrar síðu til að komast beint í meginmál, leiðarkerfi, leit og/eða hafa samband.
- Hægt er að vafra um vefsíðunna með notkun flýtilykla (accesskeys) á eftirfarandi hátt:
- 0 eða H = Hjálp
- 1 = Forsíða
- 2 = Veftré
- 3 = Leit
- Vefsíðan virkar án javascript í öllum meginatriðum.
- Úlit vefsíðunnar hefur verið samræmt og prófað í eftirfarandi vöfrum:
- Linux: Epiphany 2.16, Firebird 0.7, Firefox 1.0, Firefox 1.5, Firefox 2.0, Firefox 3.0, Flock 0.7, Galeon 2.0, Iceweasel 2.0, Konqueror 3.5, Mozilla 1.7, Opera 9.10, Phoenix 0.5, SeaMonkey 1.1
- Mac: Firefox 2.0, Safari 2.0
- Windows: Firefox 1.5, Firefox 2.0, MSIE 5.0, MSIE 5.5, MSIE 6.0, MSIE 7.0
- Deiglan styður Microformats og hægt er að vista rafrænt nafnspjald fyrir alla pistlahöfunda og Deigluna samkvæmt s.k. vCard staðli sem studdur er af flestum póstforritum á borð við Outlook ofl. Þessi rafrænu nafnspjöld eru t.d. aðgengilega með Tails innstunginni fyrir Firefox, Microformats Bookmarklet fyrir Firefox og Safari. Sjá nánar á www.microformats.org
Allar ábendingar eða fyrirspurnir varðandi aðgengismál á vef Deiglunnar eru velkomnar og má senda í tölvupósti á vefstjori@deiglan.com. Við munum leitast við að svara öllum skilaboðum eins fljótt og auðið er.