Keisarans hallir skína

Ţórlindur Kjartansson ţann 14.04.08

Björn Bjarnason hittir naglann á höfuđiđ í dagbókarfćrslu sinni á laugardag ţar sem hann fjallar um hvort stjórnmálamenn eigi ađ íhuga ađ láta sig vanta á helstu opinberu athafnir Ólympíuleikanna í Kína. "Sá munur er á Ólympiuleikum undir forrćđi einrćđisríkja og lýđrćđisríkja, ađ hin fyrrnefndu líta á leikana öđrum ţrćđi sem viđurkenningu á stjórnarháttum sínum, en í hin síđarnefndu láta sér slíkt í léttu rúmi liggja. Einmitt ţess vegna er litiđ öđrum augum á ferđ stjórnmálamanna á leikana í einrćđisríki - hún er túlkuđ sem póltísk viđurkenning ekki síđur en stuđningur viđ íţróttamenn," segir í fćrslu Björns.

Í ţessum orđum felst nákvćmlega kjarninn í ţví af hverju ýmsir, ţar á međal Samband ungra sjálfstćđismanna, vilja ekki ađ íslenskir stjórnmálamenn taki ţátt í opinberum athöfnum á Ólympíuleikunum. Flestir eru nefnilega sammála um ađ ţađ sé ekki til góđs ađ blanda saman pólitík og íţróttum - en ţađ er einmitt ţađ sem kínversk stjórnvöld eru líkleg til ţess ađ gera.

Mikil og áberandi fordćmi eru fyrir ţví ađ pólitík blandist íţróttum ţegar Ólympíuleikar eru annars vegar. Stjórnvöld í 62 ríkjum ákváđu ađ senda ekki íţróttamenn á Ólympíuleika í Moskvu áriđ 1980 og mótmćla ţannig innrás Sovétríkjanna í Afganistan (ţess má geta ađ Kínverjar voru međal ţeirra ţjóđa sem sniđgengu leikana). Fjórum árum síđar voru haldnir Ólympíuleikar í Los Angeles og sniđgengu sextán ţjóđir ţá leika. Ţá voru afleiđingar mótmćlanna mun meiri heldur en ađ hafa af stjórnmálamönnum skemmtileg kokteilbođ og gistingu á lúxushótelum í fjarlćgum löndum.

Fáir hafa lagt til svo umfangsmiklar ađgerđir til ţess ađ mótmćla harđstjórninni í Kína. Ţađ vćri sannarlega hrćsni ef ţjóđir sem leyfa umfangsmikil viđskipti viđ Kína tćkju upp á ţví ađ bregđa fćti fyrir íţróttamenn. Íţróttafólkiđ hefur í fćstum tilvikum nokkuđ annađ markmiđ í huga heldur en ađ taka ţátt í einstćđum íţróttaviđburđi. Ţađ ekki ađ gera nokkrar siđferđislegar málamiđlanir međ ţátttöku sinni. Ţeir sem stunda viđskipti í Kína ţurfa hins vegar margir ađ horfast í augu viđ ađ ţar međ eru ţeir ađ einhvejru leyti ađ bindast í hagsmunabandalag međ ríkjandi valdhöfum í landi ţar sem líf og réttindi einstaklinganna eru virt lítils.

Ţađ er einnig vafalaust rétt hjá Baldri Ţórhallssyni sem hann sagđi í fréttum RÚV um helgina ađ leikarnir séu ţáttur í ţjóđarstolti Kínverja. Leikarnir hafa vafalaust hafa veriđ tilhlökkunarefni fyrir unga sem aldna Kínverja í mörg ár. Ţađ vćri klárlega harđsvírađ ađ eyđileggja fyrir börnum og fullorđnu fólki í Kína ţá gleđi sem leikarnir munu hafa í för međ sér. Slíkt myndi án mikils vafa verđa ađ vopni í höndum ţeirra Kínverja sem vilja ađ almenningur alist upp í fordómum gagnvart Vesturlöndum og útlendingum. En ţađ má hins vegar deila um ţá stađhćfingu Baldurs ađ kínversk stjórnvöld hafi notađ leikanna til ţess ađ "opna landiđ og gera ţađ vestrćnna". Líklegra er ađ kínversk stjórnvöld hafi hugsađ sér gott til glóđarinnar og sýna fram á dýrđ sína og mátt međ ţví ađ gera úr leikunum eina allsherjarveislu fyrir öll skilningarvit, ţar sem ţúsundir og tugţúsundir munu ganga, dansa og syngja í takt og tónlistin mun harmónera viđ flugelda og ljósadýrđ. Ţađ verđur fallegt í Kína og keisarans hallir skína.

Slíkar stórsýningar hafa alltaf veriđ í miklu uppáhaldi í einrćđisríkjum - eins og ţau vilji segja: "Ţegnar! Ţađ er vegna ţess ađ viđ kúgum ykkur sem dýrđ ţjóđarinnar er svo mikil eins og sést á ţessari stundu. Vandrćđagemlingarnir sem mótmćla okkur vilja hafa af ykkur ţá stund gleđi og stolts sem ţiđ upplifiđ nú."

Sú táknrćna ađgerđ ađ mćta ekki í pólitískum erindum á leikana felur ţví í sér bćđi virđingu viđ leikana og ţegnana í Kína. Ţar er litlu fórnađ nema nokkrum kokteilglösum og góđu sćti úr heiđursstúkunni - en í ofanálag ţá er ómögulegt ađ túlka fjarveruna sem móđgun viđ kínverskan almenning ţótt hún kunni ađ vera vonbrigđi fyrir kínverska ráđamenn. Ţađ er hins vegar ekkert viđ ţađ ađ athuga ef íslenskir stjórnmálamenn vilja mćta á leikana og styđja tiltekna íţróttamenn. Best fćri ţá á ţví ađ aftengja pólitíkina alfariđ frá leikunum og mćta í gallabuxunum, međ fánann málađan í andlitiđ og setjast viđ hliđina á öđrum óbreyttum stuđningsmönnum en standa ekki í jakkafötum eđa dragt viđ hliđina á mönnum sem vilja gefa ţjóđ sinni ţau skilabođ ađ heimurinn felli sig viđ ţá harđstjórn, ritskođun og ofbeldi sem ţeir ástunda.

Svara ţessum pistli

Facebook notendur geta skráđ athugasemdir viđ pistla. Vinsamlega látiđ fullt nafn fylgja međ öllum svörum, veriđ málefnaleg og haldiđ ykkur innan marka almennrar kurteisi. Ritstjórn kćrir sig ekki um ađ Deiglan sé vettvangur fyrir einelti eđa skítkast og áskilur sér fullan rétt til ađ velja og hafna svörum. Takk fyrir!