Deiglan.com
Deiglan er frjálst og óháð vefrit, ótengt flokkum eða félagasamtökum. Ritstjórnarstefna Deiglunnar felst í að birta vandaða og upplýsandi pistla um hvaðeina sem erindi á í þjóðmálaumræðuna.
Betarokk leiðir nýtt framboð í Stúdentapólitíkinni
![]() Betarokk ásamt nánum samstarfsmanni á sellufundi. Aðspurð sagðist Beta hlakka sérstaklega mikið til að vinna með þessum tiltekna einstakling á næstunni. |
Betarokk hefur verið mjög mikið í sviðsljósinu á síðustu misserum. Hæst ber bloggsíðu hennar sem varð fljótt ein mest lesna bloggsíða landsins. Einnig var bloggbókin hennar ein af mest seldu jólabókunum. Skömmu áður hafði hún vakið mikla athygli fyrir gleðskaparlýsingar í útvarpi. Elísabet ákvað reyndar að draga sig í hlé frá sviðsljósinu yfir hátíðirnar og lýsti því yfir á blogginu sínu að hún yrði að gera róttækar breytingar á lífsstíl sínum “til að halda geðheilsu”. Hún hyggst nú snúa galvösk og endurnærð til baka eftir um fjögurra vikna hvíld frá sviðsljósinu.
Ekki þarf að tíunda mikilvægi þess fyrir nýtt og óþekkt framboð með ný og óljós stefnumál að fá landsþekktan listamann til að vekja á sér athygli. Einnig þykir það mæla með Beturokk að hún hefur verið afar áberandi í félagslífi Háskólans í vetur.
Flestir aðstandenda nýja framboðsins hafa eitthvað garfað við stjórnmálastörf síðustu misseri en engu að síður verður framboðslistinn fullkomlega óháður listi skipaður fullkomlega óháðum frambjóðendum flestum úr röðum Vinstri grænna. Gæti nokkur frambjóðandi verið óháðari nokkrum manni en Betarokk?
Þrátt fyrir óumdeilda hæfileika Beturokk til að koma sér á framfæri stóð engu að síður nokkur styrr um þessa skipan mála. Ekki er við því að búast að framboðið nái nema einum fulltrúa af níu inn og hún því jafnframt í baráttusætinu. Vantraust á einstökum hæfileikum Beturokk var þó alls ekki ástæðan. Þeir heimildarmenn Flugufótarins sem eru úr innsta hring nýja aflsins sögðu að þvert á móti hefði verið um hugmyndafræðilegan grundvallarágreining að ræða. Mörgum aðstandenda framboðsins þótti það ekki í anda lýðræðislegra vinnubragða að koma framboðinu á framfæri við nemendur Háskóla Íslands.
Engu að síður hefur náðst ágæt sátt um þessa niðurstöðu eftir. Flugufóturinn hafði samband við Betu, sem vildi ekki staðfesta orðróminn. En hún sagðist vera orðinn hluti af þessum hópi fólks og myndi að sjálfsögðu vera á listanum eins og allir vinir aðstandendanna.
Aðspurð um þekkingu og áhuga á hagsmunamálum stúdenta svaraði Beta því hreint út að slíku væri “ekki til að dreifa”, en það væri "barasta alltílæ". T.d. sagðist hún lítt eða ekkert hafa kynnt sér "hvaðetta Stúdentaráð er" eða hver væru helstu hagsmunamál nemenda, enda væri það ekkert “issue”. Sjálf sagðist hún þó hafa mikinn áhuga á fleiri vísindaferðum. Innan framboðsins væri almenn samstaða um að leiðtogi á listanum þyrfti ekki að hafa nokkra reynslu af hagsmunastörfum. Aðalatriðið væri að hann skynjaði rómantíkina í því að upplifa sjálfan sig sem uppreisnarmann gegn kerfinu.
Beta viðurkenndi ennfremur að áhugi sinn á þessu verkefni hefði vaknað eftir mörg samtöl við listamenn og fagurkera sem hún kynntist eftir útgáfu bloggbókar sinnar. Þá hefði hún kynnst róttækum þjóðfélagshugmyndum og öðruvísi lífsstíl og látið hrífast með. (Þegar blaðamaður Flugufótsins hafði splæst einu staupi á hana í viðbót trúði hún honum reyndar fyrir því að henni sýndist líka af mörgum ástæðum heppilegra að leika stjörnu og vekja á sér athygli ef maður hefði einhvern málstað á vörunum.) Hún taldi sig eiga vel heima í þessum hóp af fólki og hlakkaði mikið til að fara með næst þegar ætti að fara í snjókast við Alþingishúsið!
Flugufóturinn hóf göngu sína á Deiglunni á vormánuðum 2001. Ekki er flugufótur fyrir flestu því sem fram kemur í Flugufætinum. Lesendur eru beðnir um að hafa það hugfast. Innihald flugufótarins skal ekki túlka þannig að það endurspegli viðhorf Deiglunnar, eða einstakra penna Deiglunnar, til einstakra mála eða persóna. Um er að ræða góðlátlegt grín, hvort sem viðfangsefnið telst vera viðkvæmt eður ei. Telji einhver lesanda að of langt sé gengið í gríninu er hann vinsamlegast beðinn um að koma ábendingum til ritstjóra.
Saving Graceland
Leikfangabílaeigendur æfir
Aflakló á Íslandsmiðum
SANNLEIKSÁST FLUGUFÓTARINS –Laug aldrei um Dag Bje-
Félagsleg meirihlutaeign valið besta nýyrði Samfylkingarinnar
Rauðhærðum meinaður aðgangur að tjaldstæðum Akureyrar um Verzlunarmannahelgina
Hetjudáðir Ingibjargar Sólrúnar Jórsalafara, I. kapituli.
Greiningardeildir bankanna krefjast afsagnar Eyjólfs
Hekla kolefnisjafnar sig hjá Kolviði
Að grínast eða ekki grínast.
Enn einn flokkurinn
Áhugamannaleikfélag framsóknarflokkins setur upp Hudsucker Proxy
Hin nýja Sundbraut
Örugga leiðin til sölu
Klámið skilgreint
Flugufóturinn óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa
Ys og þys á þingi Framsóknarmanna
Öfgasamtökin rUMFÍ tala við Flugufótinn
Músum sleppt í Bónus
Leið Margrétar og Félaga til Valda
Flokkur frjálslyndra fær góðan liðsstyrk
Kvenfrelsun frjálslyndra
Upphaf endaloka fagnaðarerindisins um Ingibjörgu Sólrúnu, dóttur Gísla.
Sannleikurinn má ekki deyja með flokkseigendafélaginu
Grímulaus leiðindi
Loksins íslenskir árásakafbátar
Í jólaköttinn
Aðför að vöxtum
Umboðsmaður íslenskrar tungu
Stjórnmálamenn styðja villt og galið
Guðni tvöfaldast
Stefnumótandi forrit
Vörnin í vörn
Þjóðin sátt
Innbrot í tölvur stjórnmálaflokka
Bifröst flutt til Skagafjarðar
Íslendingar kaupa Dan Dryer
Nágrannaeftirlitið virkjað
Útihátíð Flugufótarins um verslunarmannahelgina
Enginn innflutningur á næstunni!
HM hefst á morgun
Dagsbækurnar 16.-21. maí
Dagsbækurnar, 12-15.maí 2006.
Dagsbækurnar - brot úr dagbók borgarstjóraefnis
Baráttusöngur íslenskra bankamanna
Konungur lífsins
Stefnuskrá Samfylkingarinnar
Helgisögur af Degi B. III. Kapituli
Helgisögur af Degi B II. kapituli
Helgisögur af Degi B I. kapituli
SKÖPUN NÝJU REYKJAVÍKUR ANNO 2006
Mótmælir lélegum húmor
Sanitas-hugdettan gengur til liðs við alþjóðleg samtök hugdetta
LÁTUM ALDREI AFTUR TRYLLTAN KOMMÚNISTASKRÍL RÁÐAST Á LÝÐRÆÐIÐ
Ríkisstjórnin gerir yfirtökutilboð í Grænland
Nýr umboðsmaður Alþingis
Flugufóturinn skorar á alkóhólista
Halldór Ásgrímsson rappaði ræðuna
Opið bréf Drottins Guðs almáttugs til Alfreðs Þorsteinssonar
Baugur býður betur
Ræða Árna Magg á Hinsegin dögum
Borgarblús
Mótmælendur við Kárahnjúka færa sig úr stað
Orkuveitan kaupir Legoland
Hvíta hyskið
Fjórtán Færeyingar á lúsarlaunum
Þjóðhátíðarræða forsætisráðherra
Auglýsing um stöðu forstjóra Landbúnaðarstofnunar
Álæðið er æði og bara rétt að byrja
Hinn rétti eignalisti Framsóknarmanna!
AL-Group
Dóri dæmdi víti á Alþingi í dag
Gunnar Örlygsson, brennivín og kellingar
Gnótt Bobbya í kjölfar Fischers?
Terroristi stöðvaður á Austurvelli
Fjölmenni á flokksþingi Framsóknarflokksins
Yngsti páfinn frá upphafi
Ekkert grín
Valdís Óskarsdóttir verðlaunuð fyrir bestu klippinguna
Yfirlýsing Drottins vegna uppsagnar Jóhanns Haukssonar
P-listinn klofinn!
P-listi Alfreðssinna nýr í baráttunni um borgina
Yfirlýsing Drottins um siðmennt og aðra satanista
Völvuspá fyrir árið 2005
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu
Dagar 79-81
Dagar 66 - 78
Dagar 63-65
Dagar 59-62
Dagar 56 - 58
Dagar 41-55
Dagar 34-40
Dagar 30 - 33
Dagar 27-29
Dagar 20-26
Dagar 16 - 19
Skrensuð stjórnarskrá
Dagar 13-15
Samningur um einkarétt á dagbók forsætisráðherra
Orðabók Alþingis
Dagbók forsætisráðherra
Ótrúlegir atburðir
Áríðandi yfirlýsing
Uppreisn í Framsóknarflokknum!
Skipulagsbreytingar hjá KB banka
Veiðigjald lagt á
Er fjölmiðlafrumvarpið þinglegt, hriplekt eða sæmilegt?
Niðurstöður forsetakosninganna túlkaðar
VefVakandi
Yfirlýsing Jehóva varðandi synjun forsetans
Ástþór leggst í hýði
Fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslunnar
Marshall-hjálpin
Neitaði að skrifa undir vitlaus lög
Siðaskiptin afturkölluð!
Einkaviðtal við forsætisráðherra
Heimdallur ályktar gegn konum
Forsetinn á Ólympíuleika
Eignarhald á fjölmiðlum
Sameining ungliðahreyfinganna fyrir dyrum
Brot á þingræðisreglunni
Bananaræktun Björns Bjarnasonar
Á móti áfengisfrumvarpinu (og flestu öðru)
Mjólkurveita Reykjavíkur
Niðursuðuverksmiðjur ríkisins
Sjúklingar vilja borga meira
Fleiri skynsamlegar aðhaldsaðgerðir á leiðinni
Samtök gegn nýburum stofnuð!
Hitar upp fyrir Joaqíun Cortés
Leyniskjal afhjúpað
Bólufreðinn Bush í klámmynd
Leynifélagið afhjúpað
Davíð Oddsson í forsetaframboð
Inger í stuði
Ráðherra lofar skeini úr heimabyggð
(feminist) Free pic
Ljósabekkjaferðir gegn hryðjuverkum
KB banki flutti í nýjar höfuðstöðvar
ÍE, OZ og Sony-Ericsson með uppgötvun
Jóni Steinari svarað fullum hálsi!
Húsbrot hjá Hannesi
Sannleikurinn um efnavopnin
Skipað að klæðast derhúfum
„Frúr mínar og herrar, við náðum honum!“
Línuívilnun - eru fleiri ívilnanir á leiðinni?
Lofar að gera þetta aldrei aftur
Þeim var treyst!
Lausn á fjárhagsvanda Háskólans í sjónmáli
Össur sniðgengur Latóhagkerfið
Norðurljósin seld - hverjir keyptu?
Þurfa að drekka ógeðsdrykkinn!
Tár, bros og takkaskór
Össur gefur út hljómplötu
Einkafréttir frá landsfundi Samfylkingarinnar
Fá ekkert borgað!
Hreyfing á ungliðunum
Hagstofa Íslands neitar að skrá nýbura!
Hagfræðingur straujar skyrtu, fyrstur íslenskra karlmanna!
Evrópusinnaður sjálfstæðismaður hýddur á almannafæri
Sviptingar í viðskiptalífinu - ítarleg fréttaskýring
Kolkrabbi – oj, bjakk
Stórfrétt af borgarmálum í Reykjavík – hver er hinn raunverulegi borgarstjóri?
Köttur Davíðs ráðinn tollstjóri
Óvíst um framtíð Latabæjar
Nýjar dýrategundir á Íslandi
Hverjir voru hvar – á Þjóðhátíð!
Sannleikurinn um Chelsea!
Íslenskt flug lagt niður
Bláa byltingin
Framsóknarmenn á Siglufirði brýna klærnar!
Sprengiefnið fundið
Helgi Hjörvar stýrir Fortíðarnefnd Samfylkingarinnar!
Allir vilja vera "aðal"
Sjálfstæðisflokkurinn birtir lokað bókhald!
Nýr allsherjargoði vígður
Ingibjörg Sólrún borgarlistamaður
Yfirmaður íslenska hersins valinn
Ýmislegt hefur fundist
Tíu milljarða fjársvikamál á Þjóðarbókhlöðunni
Fyrirbyggjandi aðgerðir í Hvalfjarðargöngum
Nýr vettvangur fyrir upplýsingamálaráðherrann
Stórtíðindi af Samfylkingunni
Samfylking með stefnuskrá?
Þýskir stúdentar álykta
Kvíabryggja – nýr áfangastaður fyrir ferðamenn?
Krúttlegir framfarasinnar
Ekkert fyndinn í alvörunni
Eurovision hneyksli skekur landið
Tengsl Jackson við Ísland
Nýstárlegar kannanir
Betarokk leiðir nýtt framboð í Stúdentapólitíkinni
Ný skýrsla um kostnaðinn við inngöngu í ESB
Bush brjálaður út í ráðgjafa sína
Össur formaður á góða vini
Mun setja ál-lög á efnahagslífið
Stórtíðindi af framboðsmálum Samfylkingarinnar í Reykjavík
Adolf Hilmar til liðs við Þjóðhreinsunarflokkinn
Persónulegir gjaldmiðlar
Jólasveinar 1 og 13. Hver er sá fjórtándi?
Ingibjörg fram í Háskólanum?
Innherjaupplýsingar um "sér"framboð
Konungur Evrópu
Múrverkir Sverris
The Return of the Two Thousand Man!
Framboðin fínpússuð
Nýtt heilbrigðiskerfi afhjúpað
Fjölskyldan stækkar enn
Spaugstofan „bara grín”
Metnaðarfullur framsóknarmaður
Tilnefndur til engra Edduverðlauna?
Á móti ÖLLU
Össur virtur viðlits
Mikill gróði hjá Össuri
Könnun Samfylkingarinnar
Athafnamenn styrkja mæður
Geimsýn verður til
Stóra lyfjahneykslið
Minnisblað Atla fundið
Svikamör á Suðurlandi
Fáir flækingsfuglar glöddu fuglaskoðendur
Eimskip færir út kvíarnar
Kommúnistar finna nýtt baráttulag
Næsti Seðlabankastjóri
Herstöðvarandstæðingar misskildir
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu einkavædd
Gandhi vísað úr landi
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram bókhald sitt
Missa ekki af lestinni
Græna hættan
Friður og fjölmenni
Þarf Ísland iðnaðarstefnu?
Íslenska ríkisstjórnin þarf að skera niður í ríkisútgjöldum. Hingað til hefur sá niðurskurður verið að mestu leyti flatur. Það á enn eftir að skera meira niður. Spurningin er hvort hægt sé að skera niður á markvissari hátt þannig að sá peningur sem sitji eftir sé nýttur með sem bestum árangri. Skýr stefna og forgangsröðun eru skilyrði þess að slíkur árangur náist.
Þarf Ísland iðnaðarstefnu?
Íslenska ríkisstjórnin þarf að skera niður í ríkisútgjöldum. Hingað til hefur sá niðurskurður verið að mestu leyti flatur. Það á enn eftir að skera meira niður. Spurningin er hvort hægt sé að skera niður á markvissari hátt þannig að sá peningur sem sitji eftir sé nýttur með sem bestum árangri. Skýr stefna og forgangsröðun eru skilyrði þess að slíkur árangur náist.
Líklegustu sigurvegararnir í BNA
Veðbankar telja núna langlíklegast að Obama verði forsetaframbjóðandi Demókrata, hengi Obama fer ört hækkandi núna en gengi Hillary hagar sér meira eins og íslenska úrvalsvísitalan og hríðfellur. Áður en úrslitin eru kunn í New Hampshire eru líkurnar að Obama verði frambjóðandi Demókrata 74% en hins vegar eru bara talið að 24% líkur séu að Hillary vinni. Spennan er hins vegar meira hjá Repúblikönum þar sem McCain leiðir en Giuliani og Huckabee eru enn inni í myndinni.
