Forsíða » Flugufótur » Bláa byltingin

Bláa byltingin

Flugufóturinn hefur nú afhjúpað enn eitt samsærið í undirheimum íslenskrar pólitíkur. Þegar unnusta afa eins fréttamanna Flugufótarins hugðist skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn seint í gærkvöldi rak hún augun í að á skráningarblaðinu stóð „[ ] vil ekki vera í heimavarnarliði."

Gaman á góðri stund
Ungliðarnir að máta nýju hermannafötin sín.
Einn Heimildarmanna Flugufótarins sem starfar á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins sagði að hér hafi verið um mistök að ræða. Þessi tegund skráningarblaða hafi ekki átt að vera komin í umferð strax, enda væri ekki enn búið að kaupa byssurnar fyrir heimavarnarliðið.

„Hugmyndin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn taki að sér varnir landsins. Það er bara eðlilegt og svo margt sem styður þá hugmynd. Þeim sem taka þátt í stjórnmálastarfi hlýtur að vera umhugað um hag lands og þjóðar, sem er kostur fyrir hermenn. Svo stóðu Hvítliðarnir sig svo helvíti vel þegar kommúnistar gerðu byltingartilraun á Austurvelli hér um árið, en það voru að upplagi Heimdellingar svo að reynslan er þar til staðar. Að lokum væri líka óheppilegt ef upp kæmu deilur milli vopnaðra manna og betra að þeir séu allir í sama flokki og hafi þannig minna til að rífast um. Þá gefur auga leið að Sjálfstæðisflokkurinn kemur best til greina, enda er hann langfjölmennastur með rúmlega 21 þúsund félaga." Sagði heimildarmaðurinn sem einkar rík ástæða er til að treysta.

Að sögn heimildarmannsins verða allir skráðir félagar í Sjálfstæðisflokknum sjálfkrafa félagar í heimavarnarliðinu. Nýir félagar geti þó hakað við á inntökubeiðni í flokkinn ef þeir vilja ekki vera með. Jafnframt muni þeir sem skrá sig á póstlista flokksins vera í aukavaraliði, en þeir munu aðeins fá send heim léttari vopn, en ekki sjálfvirkar hríðskotabyssur eins og flokksfélagar.

„Auðvitað hafa komið upp ýmsar hugmyndir samfara þessu. Lýðræði snýst náttúrulega fyrst og fremst um að ná sátt í þjóðfélaginu svo ekki logi allt í illdeilum. Það ætti að vera auðvelt að halda aga og sátt í þjóðfélaginu með svona öflugu herliði og þannig ekki víst að það þurfi endilega að hafa kosningar. Til dæmis gæti herforingjaráðið bara stjórnað landinu. Það sem til sparast gæti nýst til stríðsreksturs. Það eru kannski ekki mörg lönd sem við gætum haft undir, en hugmyndir á borð við Lúxemborg og Tuvalu eyjar hafa komið fram."

Heyrst hefur að heimavarnarliðið verði notað til að tryggja völd Sjálfstæðisflokksins í landinu. Heimildarmaður Flugufótarins vildi hvorki játa því né neita en sagðist geta staðfest það svo lengi sem það kæmi ekki fram í skrifum Flugufótarins. „Sko bylting er nú ekki rétta orðið, það er svo kommúnískt sjáðu, og svo étur hún líka börnin sín. Við erum að spá í að kalla þetta Frelsun eða jafnvel Þjóðfrelsun. Ég held að fólk verði bara ósköp fegið að þurfa ekki lengur að pæla í því hvað það á að kjósa."

Mikill metnaður ríkir í herbúðum undirbúningsnefndarinnar sem leggur drög að stofnun heimavarnarliðsins. „Já, það er ekki spurning. Við ætlum sko að sýna að þetta verður enginn sveitamannaher. Til dæmis ætlum við að setja upp stærsta jarðsprengjubelti í Evrópu á Kárahnjúkasvæðinu og gera vikulegar loftárásir á Svía. Við viljum náttúrulega helst sprengja Norðmenn, en þeir eru í NATÓ líka og Svíar eru næsta land við svo það verður að duga."

Aðspurður sagði heimildarmaðurinn að helsta áhyggjuefni undirbúningsnefndarinnar væru agavandamál. Herða þyrfti flokksagann gríðarlega, en hann hafi ekki verið nægilega mikill hingað til. Alltaf séu einhverjir sem ekki séu tilbúnir að fylgja línunni. Það ætti þó að vera tæmandi vandamál þar sem stefnt er að því að allir liðhlaupar verði skotnir.

Hvað er Flugufóturinn?

Flugufóturinn hóf göngu sína á Deiglunni á vormánuðum 2001. Ekki er flugufótur fyrir flestu því sem fram kemur í Flugufætinum. Lesendur eru beðnir um að hafa það hugfast. Innihald flugufótarins skal ekki túlka þannig að það endurspegli viðhorf Deiglunnar, eða einstakra penna Deiglunnar, til einstakra mála eða persóna. Um er að ræða góðlátlegt grín, hvort sem viðfangsefnið telst vera viðkvæmt eður ei. Telji einhver lesanda að of langt sé gengið í gríninu er hann vinsamlegast beðinn um að koma ábendingum til ritstjóra.

Eldri Flugufætur:
Saving Graceland
Leikfangabílaeigendur æfir
Aflakló á Íslandsmiðum
SANNLEIKSÁST FLUGUFÓTARINS –Laug aldrei um Dag Bje-
Félagsleg meirihlutaeign valið besta nýyrði Samfylkingarinnar
Rauðhærðum meinaður aðgangur að tjaldstæðum Akureyrar um Verzlunarmannahelgina
Hetjudáðir Ingibjargar Sólrúnar Jórsalafara, I. kapituli.
Greiningardeildir bankanna krefjast afsagnar Eyjólfs
Hekla kolefnisjafnar sig hjá Kolviði
Að grínast eða ekki grínast.
Enn einn flokkurinn
Áhugamannaleikfélag framsóknarflokkins setur upp Hudsucker Proxy
Hin nýja Sundbraut
Örugga leiðin til sölu
Klámið skilgreint
Flugufóturinn óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa
Ys og þys á þingi Framsóknarmanna
Öfgasamtökin rUMFÍ tala við Flugufótinn
Músum sleppt í Bónus
Leið Margrétar og Félaga til Valda
Flokkur frjálslyndra fær góðan liðsstyrk
Kvenfrelsun frjálslyndra
Upphaf endaloka fagnaðarerindisins um Ingibjörgu Sólrúnu, dóttur Gísla.
Sannleikurinn má ekki deyja með flokkseigendafélaginu
Grímulaus leiðindi
Loksins íslenskir árásakafbátar
Í jólaköttinn
Aðför að vöxtum
Umboðsmaður íslenskrar tungu
Stjórnmálamenn styðja villt og galið
Guðni tvöfaldast
Stefnumótandi forrit
Vörnin í vörn
Þjóðin sátt
Innbrot í tölvur stjórnmálaflokka
Bifröst flutt til Skagafjarðar
Íslendingar kaupa Dan Dryer
Nágrannaeftirlitið virkjað
Útihátíð Flugufótarins um verslunarmannahelgina
Enginn innflutningur á næstunni!
HM hefst á morgun
Dagsbækurnar 16.-21. maí
Dagsbækurnar, 12-15.maí 2006.
Dagsbækurnar - brot úr dagbók borgarstjóraefnis
Baráttusöngur íslenskra bankamanna
Konungur lífsins
Stefnuskrá Samfylkingarinnar
Helgisögur af Degi B. III. Kapituli
Helgisögur af Degi B II. kapituli
Helgisögur af Degi B I. kapituli
SKÖPUN NÝJU REYKJAVÍKUR ANNO 2006
Mótmælir lélegum húmor
Sanitas-hugdettan gengur til liðs við alþjóðleg samtök hugdetta
LÁTUM ALDREI AFTUR TRYLLTAN KOMMÚNISTASKRÍL RÁÐAST Á LÝÐRÆÐIÐ
Ríkisstjórnin gerir yfirtökutilboð í Grænland
Nýr umboðsmaður Alþingis
Flugufóturinn skorar á alkóhólista
Halldór Ásgrímsson rappaði ræðuna
Opið bréf Drottins Guðs almáttugs til Alfreðs Þorsteinssonar
Baugur býður betur
Ræða Árna Magg á Hinsegin dögum
Borgarblús
Mótmælendur við Kárahnjúka færa sig úr stað
Orkuveitan kaupir Legoland
Hvíta hyskið
Fjórtán Færeyingar á lúsarlaunum
Þjóðhátíðarræða forsætisráðherra
Auglýsing um stöðu forstjóra Landbúnaðarstofnunar
Álæðið er æði og bara rétt að byrja
Hinn rétti eignalisti Framsóknarmanna!
AL-Group
Dóri dæmdi víti á Alþingi í dag
Gunnar Örlygsson, brennivín og kellingar
Gnótt Bobbya í kjölfar Fischers?
Terroristi stöðvaður á Austurvelli
Fjölmenni á flokksþingi Framsóknarflokksins
Yngsti páfinn frá upphafi
Ekkert grín
Valdís Óskarsdóttir verðlaunuð fyrir bestu klippinguna
Yfirlýsing Drottins vegna uppsagnar Jóhanns Haukssonar
P-listinn klofinn!
P-listi Alfreðssinna nýr í baráttunni um borgina
Yfirlýsing Drottins um siðmennt og aðra satanista
Völvuspá fyrir árið 2005
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu
Dagar 79-81
Dagar 66 - 78
Dagar 63-65
Dagar 59-62
Dagar 56 - 58
Dagar 41-55
Dagar 34-40
Dagar 30 - 33
Dagar 27-29
Dagar 20-26
Dagar 16 - 19
Skrensuð stjórnarskrá
Dagar 13-15
Samningur um einkarétt á dagbók forsætisráðherra
Orðabók Alþingis
Dagbók forsætisráðherra
Ótrúlegir atburðir
Áríðandi yfirlýsing
Uppreisn í Framsóknarflokknum!
Skipulagsbreytingar hjá KB banka
Veiðigjald lagt á
Er fjölmiðlafrumvarpið þinglegt, hriplekt eða sæmilegt?
Niðurstöður forsetakosninganna túlkaðar
VefVakandi
Yfirlýsing Jehóva varðandi synjun forsetans
Ástþór leggst í hýði
Fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslunnar
Marshall-hjálpin
Neitaði að skrifa undir vitlaus lög
Siðaskiptin afturkölluð!
Einkaviðtal við forsætisráðherra
Heimdallur ályktar gegn konum
Forsetinn á Ólympíuleika
Eignarhald á fjölmiðlum
Sameining ungliðahreyfinganna fyrir dyrum
Brot á þingræðisreglunni
Bananaræktun Björns Bjarnasonar
Á móti áfengisfrumvarpinu (og flestu öðru)
Mjólkurveita Reykjavíkur
Niðursuðuverksmiðjur ríkisins
Sjúklingar vilja borga meira
Fleiri skynsamlegar aðhaldsaðgerðir á leiðinni
Samtök gegn nýburum stofnuð!
Hitar upp fyrir Joaqíun Cortés
Leyniskjal afhjúpað
Bólufreðinn Bush í klámmynd
Leynifélagið afhjúpað
Davíð Oddsson í forsetaframboð
Inger í stuði
Ráðherra lofar skeini úr heimabyggð
(feminist) Free pic
Ljósabekkjaferðir gegn hryðjuverkum
KB banki flutti í nýjar höfuðstöðvar
ÍE, OZ og Sony-Ericsson með uppgötvun
Jóni Steinari svarað fullum hálsi!
Húsbrot hjá Hannesi
Sannleikurinn um efnavopnin
Skipað að klæðast derhúfum
„Frúr mínar og herrar, við náðum honum!“
Línuívilnun - eru fleiri ívilnanir á leiðinni?
Lofar að gera þetta aldrei aftur
Þeim var treyst!
Lausn á fjárhagsvanda Háskólans í sjónmáli
Össur sniðgengur Latóhagkerfið
Norðurljósin seld - hverjir keyptu?
Þurfa að drekka ógeðsdrykkinn!
Tár, bros og takkaskór
Össur gefur út hljómplötu
Einkafréttir frá landsfundi Samfylkingarinnar
Fá ekkert borgað!
Hreyfing á ungliðunum
Hagstofa Íslands neitar að skrá nýbura!
Hagfræðingur straujar skyrtu, fyrstur íslenskra karlmanna!
Evrópusinnaður sjálfstæðismaður hýddur á almannafæri
Sviptingar í viðskiptalífinu - ítarleg fréttaskýring
Kolkrabbi – oj, bjakk
Stórfrétt af borgarmálum í Reykjavík – hver er hinn raunverulegi borgarstjóri?
Köttur Davíðs ráðinn tollstjóri
Óvíst um framtíð Latabæjar
Nýjar dýrategundir á Íslandi
Hverjir voru hvar – á Þjóðhátíð!
Sannleikurinn um Chelsea!
Íslenskt flug lagt niður
Bláa byltingin
Framsóknarmenn á Siglufirði brýna klærnar!
Sprengiefnið fundið
Helgi Hjörvar stýrir Fortíðarnefnd Samfylkingarinnar!
Allir vilja vera "aðal"
Sjálfstæðisflokkurinn birtir lokað bókhald!
Nýr allsherjargoði vígður
Ingibjörg Sólrún borgarlistamaður
Yfirmaður íslenska hersins valinn
Ýmislegt hefur fundist
Tíu milljarða fjársvikamál á Þjóðarbókhlöðunni
Fyrirbyggjandi aðgerðir í Hvalfjarðargöngum
Nýr vettvangur fyrir upplýsingamálaráðherrann
Stórtíðindi af Samfylkingunni
Samfylking með stefnuskrá?
Þýskir stúdentar álykta
Kvíabryggja – nýr áfangastaður fyrir ferðamenn?
Krúttlegir framfarasinnar
Ekkert fyndinn í alvörunni
Eurovision hneyksli skekur landið
Tengsl Jackson við Ísland
Nýstárlegar kannanir
Betarokk leiðir nýtt framboð í Stúdentapólitíkinni
Ný skýrsla um kostnaðinn við inngöngu í ESB
Bush brjálaður út í ráðgjafa sína
Össur formaður á góða vini
Mun setja ál-lög á efnahagslífið
Stórtíðindi af framboðsmálum Samfylkingarinnar í Reykjavík
Adolf Hilmar til liðs við Þjóðhreinsunarflokkinn
Persónulegir gjaldmiðlar
Jólasveinar 1 og 13. Hver er sá fjórtándi?
Ingibjörg fram í Háskólanum?
Innherjaupplýsingar um "sér"framboð
Konungur Evrópu
Múrverkir Sverris
The Return of the Two Thousand Man!
Framboðin fínpússuð
Nýtt heilbrigðiskerfi afhjúpað
Fjölskyldan stækkar enn
Spaugstofan „bara grín”
Metnaðarfullur framsóknarmaður
Tilnefndur til engra Edduverðlauna?
Á móti ÖLLU
Össur virtur viðlits
Mikill gróði hjá Össuri
Könnun Samfylkingarinnar
Athafnamenn styrkja mæður
Geimsýn verður til
Stóra lyfjahneykslið
Minnisblað Atla fundið
Svikamör á Suðurlandi
Fáir flækingsfuglar glöddu fuglaskoðendur
Eimskip færir út kvíarnar
Kommúnistar finna nýtt baráttulag
Næsti Seðlabankastjóri
Herstöðvarandstæðingar misskildir
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu einkavædd
Gandhi vísað úr landi
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram bókhald sitt
Missa ekki af lestinni
Græna hættan
Friður og fjölmenni
Nýlegt á Deiglan.com

Þarf Ísland iðnaðarstefnu?

Íslenska ríkisstjórnin þarf að skera niður í ríkisútgjöldum. Hingað til hefur sá niðurskurður verið að mestu leyti flatur. Það á enn eftir að skera meira niður. Spurningin er hvort hægt sé að skera niður á markvissari hátt þannig að sá peningur sem sitji eftir sé nýttur með sem bestum árangri. Skýr stefna og forgangsröðun eru skilyrði þess að slíkur árangur náist.

Þarf Ísland iðnaðarstefnu?

Óli Örn EiríkssonÍslenska ríkisstjórnin þarf að skera niður í ríkisútgjöldum. Hingað til hefur sá niðurskurður verið að mestu leyti flatur. Það á enn eftir að skera meira niður. Spurningin er hvort hægt sé að skera niður á markvissari hátt þannig að sá peningur sem sitji eftir sé nýttur með sem bestum árangri. Skýr stefna og forgangsröðun eru skilyrði þess að slíkur árangur náist.

Líklegustu sigurvegararnir í BNA

Veðbankar telja núna langlíklegast að Obama verði forsetaframbjóðandi Demókrata, hengi Obama fer ört hækkandi núna en gengi Hillary hagar sér meira eins og íslenska úrvalsvísitalan og hríðfellur. Áður en úrslitin eru kunn í New Hampshire eru líkurnar að Obama verði frambjóðandi Demókrata 74% en hins vegar eru bara talið að 24% líkur séu að Hillary vinni. Spennan er hins vegar meira hjá Repúblikönum þar sem McCain leiðir en Giuliani og Huckabee eru enn inni í myndinni.

Helsta kosningaloforðið svikið umsvifalaust
Stjórn SUS styður frumvarp Erlu Óskar
Strætisvagn í Rússlandi sprengdur
Brotnaði aftur undan Dash 8-Q 400 flugvél
Kristín Hrefna ráðin framkvæmdastjóri