Ég hef ekki enn hitt þann Íslending sem þótti myndin Opinberun Hannesar góð og ég held að allir þeir hafa tjáð sig um hana hafi ekki enst til að horfa á hana alla.
Leikurinn var ekki góður og einn kunningi minn sagði að hann hefði jafnast á við leik í meðalklámmynd. Það er ekki nóg með að fólk virðist almennt hafa staðið upp frá skjánum og farið að gera eitthvað annað. Margir virðast beinlínis reiðir yfir því að þessi mynd hafi birst á þessum tíma.
Þetta kemur til að mynda greinilega fram ef maður leitar á google að myndinni og skoðar ummæli af blogginu.
"Svei mér þá ef Opinberun Hannesar sló ekki bara út Skaupið hvað leiðindi varðar. Og var þó allnokkuð að keppa við," skrifaði www.thordis.blogspot.com.
"Ég reyndi að horfa á Opinberun Hannesar ... Drottinn minn hvað hún er leiðinleg, stíf og tilgerðarleg, leikararnir allir með öndunaræfingar," skrifaði www.bidda.blogspot.com.
"Af hverju Opinberun Hannesar - er meiningin að fólk fái hjartastopp úr leiðindum fyrir framan sjónvarpið? Hvað kostaði þessi óskapnaður?" skrifaði www.djassmunkur.blogspot.com í bloggi sem hét "Hvað er að á Ríkisútvarpinu".
"Sjaldan hefur verið gerð jafn léleg íslensk kvikmynd og þessi. Handrit, leikur, leikstjórn, klipping, tónlistarval, hljóðvinnsla - allt var þetta langt undir pari," skrifaði www.mar.anomy.net.
Það er í meira lagi fátítt að slík viðbrögð komi við efni sem sýnt er í ríkissjónvarpinu. Það er greinilegt að fólk gerir kröfur til sjónvarpsefnis yfir hátíðirnar og það ríkir ekki skilningur á því innan RÚV.
Það er hætt við því að boðskapurinn í smásögunni, sem mér skilst að sé fín, hafi ekki komist til skila í kvikmynd Hrafns. En það er ekki ólíklegt að fleiri Íslendingum hafi opinberast hve mikil tímaskekkja Ríkissjónvarpið er og hve tímabært það er að koma því í hendur einkaaðila.
Opinberun Hannesar var ekki bara ein og sér slæm, heldur meira eins og lokahnykkurinn á illa heppnaðri og staðnaðri áramótadagskrá. Af hverju má ekki einfaldlega hætta áramótaávörpum Markúsar? Af hverju þarf alltaf að finna höfunda áramótaskaupsins úr menningarelítunni? Má ekki setja það í hendurnar á fólki sem þorir að fara ótroðnar slóðir. Það er til dæmis ótrúlegt að hugsa til þess að revíuformið hafi varðveist fram 21. öld í áramótaskaupunum.
Áramótávörpin eru alger tímaskekkja rétt eins og eldhúsdagsumræðurnar- af hverju er þessu ekki hætt. Hver er tilgangurinn?
Þeir sem skipuleggja dagskrána hjá RÚV virðast ekki vera í nokkru jarðsambandi og virðast enga tilfinningu hafa fyrir smekk og eftirspurn almennra sjónvarpsáhorfanda. Sama gildir um alla þá stjórnmálamenn sem láta fólk borga fyrir þetta, hvort sem því líkar betur eða verr. Vonandi opinberast þeim fljótlega að Ríkisútvarpið í núverandi mynd er bara ekki að virka.


Svara þessum pistli
Facebook notendur geta skráð athugasemdir við pistla. Vinsamlega látið fullt nafn fylgja með öllum svörum, verið málefnaleg og haldið ykkur innan marka almennrar kurteisi. Ritstjórn kærir sig ekki um að Deiglan sé vettvangur fyrir einelti eða skítkast og áskilur sér fullan rétt til að velja og hafna svörum. Takk fyrir!