Forsíða » Deiglufréttir » Vefþjóðviljinn notar ítrekað rangar tölur

Vefþjóðviljinn notar ítrekað rangar tölur

Í umfjöllun sinni um stjórnartíð Reagan í gær nefnir Vefþjóðviljinn til sögunnar hagtölur um framleiðni og fjölgun starfa og ber saman þróun þeirra í forsetatíð Reagan og forsetatíð Clinton. Umfjöllun Vefþjóðviljans er í veigamiklum atriðum röng. Hann fegrar stjórnartíð Reagan og svertir stjórnartíð Clinton.

Það sem er þó athyglisverðast við þessa umfjöllun Vefþjóðviljans er að hann hefur áður fallið í nákvæmlega þessu sömu gryfju með nákvæmlega þessar sömu tölur. 13. ágúst 2001 birtist pistill á Vefþjóðviljanum um þetta sama efni með þessum sömu tölum. Næsta dag birtist hér á Deiglunni pistill eftir Jón Steinsson þar sem bent var á að nánast allar tölurnar sem Vefþjóðviljinn notaði í samanburði sínum voru rangar. Rangfærslurnar voru kerfisbundið á þann veg að fegra stjórnartíð Reagan.

Pistill Jóns endaði með eftirfarandi hætti:

"Það er reyndar svolítið skrítið að Andríki hafi notað ofangreinda mælikvarða því þetta eru þeir mælikvarðar sem koma hvað best út fyrir Clinton af öllum hagstærðum sem mér dettur í hug. Í þessum pistli ætla ég ekki að leggja mat á það hvort mismunandi gengi hagkerfisins á þessum tveimur tímabilum orsakist af mismunandi efnahagsstefnu forsetanna tveggja. Þetta eru ekki réttu mælikvarðarnir til þess að gera það. Það er hins vegar mikilvægt að umræða sem þessi sé ekki lituð af röngum staðhæfingum."

Þessi forsaga sýnir svo ekki verður um villst að Vefþjóðviljanum var kunnugt um það að þessar tölur hans væru rangar. Vefþjóðviljinn viðurkenndi það meira að segja með tilkynningu sem birt var í stuttan tíma en síðan tekin niður. En því miður hefur þessi vitneskja ekki komið í veg fyrir að blaðið haldi áfram að nota þessar tölur.


Fréttir af mbl.is