Hlutirnir ganga öðruvísi fyrir sig á Íslandi en annars staðar. Viðskiptalífið, skemmtanalífið og stjórnmálin eru frábrugðin því sem annars staðar gerist. Undirritaður hefur t.d. farið í atvinnuviðtal þar sem helst var spurt að því hver pabbi hans væri. Ég hef líka flett flestum sem ég þekki upp í Íslendingabók. Sérstaklega óhugsanlegum og hugsanlegum kærustum...bara svona til að vera viss.
Því við erum jú öll skyld, og ef við erum ekki skyld, þá erum við tengd á einn eða annan hátt. Kannski þekkjumst ég og þú. Ef ekki get ég bókað það að ég þekki einhvern sem þekkir þig. Og í versta falli þekki ég einhvern sem þekkir einhvern sem þekkir þig.
Þetta er einmitt kjarni fyrrnefndrar reglu, sem af einhverjum ástæðum er kennd við Kevin Bacon. Hún felst í því að hægt sé að tengja hvaða leikara sem er í gegnum myndirnar sem hann hefur leikið í, til Kevin Bacon í minna en 6 skrefum. Sem dæmi má nefna að O.J. Simpson lék í Naked Gun ásamt Priscilla Presley, sem að lék í Ford Fairlane með Gilbert Gottfried, sem að lék í Beverly Hills Cop II ásamt Paul Reiser, sem að lék í Diner með Kevin Bacon. Þetta eru fjögur skref.
![]() Brett Tjaden |
En Brett Tjaden var ekki hættur. Hann raðaði einnig öllum þeim sem leikið hafa í Hollywood upp á lista, eftir því hversu tengdir þeir væru. Þá nær Kevin Bacon ekki einu sinni inn á topp 1000. Til hliðsjónar má nefna að hægt væri að tengja Martin Sheen við hvaða leikara sem er í Hollywood í 2.721 skrefum, sem setur hann í 9. sæti. Á topp fimmtán listanum sitja m.a. Gene Hackman, Donald Sutherland og Dennis Hopper. En í fyrsta sæti var enginn annar en Rod Steiger.
![]() Rod Steiger |
Svo getur þetta líka verið til ama þegar þegar mann (eða konu) langar til þess að verða formaður stjórnmálaflokks. Þá sérstaklega ef svili hennar er, eða öllu heldur var formaðurinn.
Heimildir og ítarefni:
http://oracleofbacon.org/




Svara þessum pistli
Vinsamlega skráið fullt nafn með öllum svörum, verið málefnaleg og haldið ykkur innan marka almennrar kurteisi. Ritstjórn kærir sig ekki um að Deiglan sé vettvangur fyrir nafnlaust skítkast og áskilur sér fullan rétt til að velja og hafna svörum. Takk fyrir!