Fćstir hafa fariđ varhluta af haustveđri fyrrihluta júlímánađar. Veđurgremjan hefur snert flesta Íslendinga sem sitja međ sárt enniđ í minningu blíđunnar síđasta sumars. En nú ţegar ágúst nálgast og fjöldi nemenda viđ Háskóla Íslands fara ađ huga ađ glósutćkni komandi sumarprófa, hefur sólin tekiđ viđ sér. Frábćrt. Grillbođin streyma inn og samviskupúkinn segir ţér ađ setjast viđ skrifborđiđ.
Úrsagnarfrestur sumarprófa rennur út 5.ágúst og er áhugi undirritađrar er ekki meiri en sá ađ martrađir um fall í miđri kennslustund í sal 1 Háskólabíói hafa truflađ svefnfriđinn ađ undanförnu. En spurningin er hvort ađ ţetta prófapuđ á ţessum tíma sé ţess virđi. Ef útskrift eđa námslán eru í veđi er vert ađ spýta í lófana. En hafa skal í huga ađ ef einingar vantar upp á vorönn til ađ fá námslán, ţá verđur ađ taka sumarpróf í fagi sem kennt er á vorönn. Námskeiđ haustannar geta ekki komiđ í stađinn, reginmistök höfundar síđasta sumar.
Hvernig skal ţá koma vinnu, utanlandsferđ og tveimur sumarprófum fyrir í einum mánuđi ásamt öllu sumarglensinu? Má ekki bara slá ţessu saman og bađa sig í laugunum međ ís annarri og bráđnađar glósur í hinni? Viđ sem höfum reynt ţetta getum ráđlagt restinni. Eins og í öđrum prófum sem ađ standast skal, ţá er máliđ ađ lćsa sig viđ skrifborđ međ lítrana af kaffi og gleyma umheiminum. Lćrdómur međ hangandi hendi er tímasóun. Njótum júlí til hins ítrasta, setjum allt í botn nokkra daga fyrir próf og höldum síđan partýinu gangandi.
Gleđilega sól og gangi ykkur vel!


Svara ţessum pistli
Vinsamlega skráiđ fullt nafn međ öllum svörum, veriđ málefnaleg og haldiđ ykkur innan marka almennrar kurteisi. Ritstjórn kćrir sig ekki um ađ Deiglan sé vettvangur fyrir nafnlaust skítkast og áskilur sér fullan rétt til ađ velja og hafna svörum. Takk fyrir!