 |
Við undirrituð styðjum umsögn Fjölmenningarráðs og Félags kvenna
af erlendum uppruna um frumvarp til laga um breytingar á lögum um
útlendinga nr. 96/2002. Við mælumst eindregið til þess að Alþingi
veiti frumvarpinu, eins og það stendur, ekki samþykki sitt.
Warning: mysql_connect() [function.mysql-connect]: Access denied for user 'sign'@'localhost' (using password: YES) in /home/deiglanc/public_html/undirskrift/index.php on line 107
Warning: mysql_select_db(): supplied argument is not a valid MySQL-Link resource in /home/deiglanc/public_html/undirskrift/index.php on line 108
Warning: mysql_query(): supplied argument is not a valid MySQL-Link resource in /home/deiglanc/public_html/undirskrift/index.php on line 110
Warning: mysql_num_rows(): supplied argument is not a valid MySQL result resource in /home/deiglanc/public_html/undirskrift/index.php on line 111
Fjöldi undirskrifta:
Umsögn Fjölmenningarráðs og Félags kvenna af erlendum uppruna
Í stuttu máli
-
Frumvarpið gerir að skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli hjónabands, sambúðar eða samvistar að erlendur maki, sambúðar- eða samvistarmaki hafi náð 24 ára aldri. Íslenskur ríkisborgari má ekki koma heim til landsins með erlendan maka sé makinn yngri en 24 ára!
- Frumvarpið veitir yfirvöldum heimild til að taka DNA-sýni af innflytjendum – án dómsúrskurðar – til að sanna skyldleika við aðila sem þegar eru staddir á Íslandi.
- Frumvarpið veitir yfirvöldum heimild til að gera leit á heimili eða persónu einstaklinga – án dómsúrskurðar – liggi einstaklingurinn undir grun um að hafa stofnað til „málamyndahjúskapar”!
- Refsivert verður fyrir útlending ef atvinnu- eða dvalarleyfi hans eru í ólagi, en eins og málum er háttað núna ber útlendingur ekki ábyrgð á öflun slíkra leyfa, heldur atvinnurekandi hans. Þarna er því veitt leyfi fyrir því að hengja bakara fyrir smið!
- Frumvarpið brýtur því gegn jafnræðisákvæði stjórnarskrár, þar sem aðrar reglur munu gilda um innfædda Íslendinga og innflytjendur hvað varðar jafn sjálfsögð mannréttindi og að fá að giftast þeim sem viðkomandi elskar og vill búa með.
- Frumvarpið brýtur jafnframt gegn þeirri grundvallarreglu íslensks réttarfars að afla verði samþykkis dómara áður en friðhelgi einkalífs einstaklinga er rofin með leit á heimili eða persónu þeirra eða með lífsýnatöku.
- Við verðum að stöðva framgang þessara laga því við getum ekki vitað hvar óréttlætið drepur niður fæti næst!
Ræða Andra Óttarssonar á Hádegisfundi í Iðnó.
Ræða Tatjana Latinovic á Hádegisfundi í Iðnó.
|
|

Upplýsingar:
Fjölmenningarráð og félag kvenna af erlendum uppruna hafa skilað áliti á
frumvarpinu til allsherjarnefndar Alþingis. Nokkrir aðilar hafa
nú tekið höndum saman um að safna undirskriftum til að taka undir
málstað þeirra. Vefritið Deiglan.com sér um hýsingu og utanumhald
verkefnisins.
Upplýsingar í stuttu máli
Aðilar að verkefninu eru:
Deiglan.com
Fjölmenningarráð
Félag kvenna af erlendum uppruna
Frjálshyggjufélagið
Heimdallur
Múrinn.is
Samband ungra framsóknarmanna
Sellan.is
Skoðun.is
Tíkin.is
Ung frjálslynd
Ung vinstri græn
Ungir jafnaðarmenn
Vaka
(vegna páskaleyfa hafa ekki fengist endanleg svör frá öllum
ungliðahreyfingum og öðrum sem haft var samband við)
Sendu ábendingu um undirskriftarlistann
Núgildandi lög:
Núgildandi lög um útlendinga
Þingmál nr. 749
Veittu stuðning og auglýstu söfnunina á vefnum þínum.
Vefstjóri: undirskrift@deiglan.com
|